Klemman

Þar sem Klemmur koma saman er alltaf gaman...

Wednesday, September 12, 2007

líkvaka klemmu online...?








Tja, mér er ekki orda bundist. Klemma hefur verid svo ræfilsleg í lengri tíma núna. Er klemma dáin? eda verdur tessu bjargad med endurlífgun?
Veit ekki hvad tid hinar segjid. Var öll ordin klökk og komin med fortídartrá er ég tók til ad lesa gamlar færslur. Rak ég tá augun í góda tillögu reglustjórans okkar kæra, um læsta klemmu. Get ég ekki séd betur en ad ég hafi sjálf verid mótfallin tillögu tessari á sínum tíma, sökum skorts á tali undir rós...
Sé ég nú ekki ástædu til af hætta teim skemmtilega talsmáta tótt klemma gerist private. Vil ég tví bera tessa tillögu á bord ad nýju, enda skil ég ekki alveg hví ekki, og í tilraun til tess ad bjarga klemmunni...


-admin.
never wave bye bye...

Monday, August 06, 2007

Smá blogg frá mér...

Takk fyrir síðast!
Þetta var voðalega skemmtilegt kvöld:)

Nú er Heiða að verða ársgömul - rosalegt hvað tíminn líður hratt.
Það er sko ekki tekið út með sældinni að eiga bara bræður en kemur sér þó vel á leikskóla:)
Hún er víst ansi hörð í horn að taka og veigrar sér ekki við því að klípa á móti.

Hreiðar fer aftur í leikskólan á morgun og ég er rosalega fegin. Ömurlegt að hafa ekki fjall og barbie-læk hérna á mölinni og friðinn frá umferð og stöðugri hættu.
Sérstaklega með svona kjarnorkubombu eins og hann.
Það verður alla vega óska staða að koma honum á legg og þurfa ekki að hafa áhyggjur af því að fá nafnið hans á miða á klemmukvöldi:)
Hann verður allavega pólitíkus eða handrukkari - það er ekkert á milli :/

Annars fékk ég nokkuð undarlega heimsókn í vikunni. Hérna bönkuðu trúboðar sem voru að selja einhver dagatöl. Allt í lagi svo sem með það en þegar ég kom til dyra fékk ég spurninguna "Er mamma þín eða pabbi heima?"
Heldur vandræðalegt og það eina sem ég gat sagt var að ég væri eiginlega mamman.
En eftir þetta fékk ég svona "konukrísu" sem ég hef fengið reglulega eftir að Óli fæddist. Svona hvort að ég þurfi ekki að fara að ganga í hælum og með varalit-krísa.
Ég get bara ekki gengið óstudd á hælum.
Eins erfitt og það er að viðurkenna það þá fékk ég mér einusinni sjálfskapaða fötlun (gel-neglur) OG bleika kápu í svona krísu. Það var ekki nógu góð lífsreynsla.
Kannski þarf ég bara að fá mér einhverja skrifstofuvinnu og athuga hvort það brýst ekki út einhver varalitakerling?!!!!

Hulda

Sunday, August 05, 2007

iss!













Klemmuleysan. Ekki einu sinni tekid undir og sagt takk fyrir sídast..

Tuesday, July 31, 2007

klemmurnar eru á lífi

Àgætu klemmur.
Takk fyrir sídast :) alltaf gaman tegar klemmur koma saman...
Àkvad ad skella inn örfáum myndum. Er reyndar ekki sú sem luma á bestu myndunum grunar mig. En hérna koma nokkrar.





















Og svo klemmustrákur Mikael Máni...











Takk fyrir skemmtilegt kvöld. Og einkar gott thema tykir mér ;)

Admin.

Wednesday, July 11, 2007

Loksins!

Loksins get ég bloggað hérna:)

Sá engar fréttir um klemmugrillið og ákvað að prófa að blogga - þó það sé einfaldara að hringja þá var ég bara svo ánægð með það að geta bloggað:)
Er planið næsta eða þar næsta helgi (13, 14, 15) eða (20, 21, 22)?
Það er kannski ekki mikil hreyfing hérna í góða veðrinu svo það er kannski betra að hringja bara í vikunni:)

Ég er að vinna laugardagskvöldið 14 en er annars laus...
Annars er ég bara lítið að vinna í sumar og bara á nóttunni svo ef ykkur langar að hressa upp á taugar og þolinmæði þá er ég alltaf til:)
Er nefnilega aldrei ein heima!

Hreiðar var að byrja í sumarfríi og það er alveg ótrúlegt hvað það munar um 3 ára ósigrandi spiderman maníak.
Hann hefur bara eitt svar við uppfræðslu, hræðsluáróðri og skömmum "nei, ég fer bara í spiderman búninginn minn og geri pssstt"
Þetta svar fæst t.d. við leiðbeiningum um að fara bara yfir götu þegar græni kallinn er eða hjóla bara á gangstéttinni því bílarnir sjái svo illa 3 ára börn.
Hann er líka bara svo furðulegur - hann hefur alltaf svart við öllu og hann efast aldrei um að hann sé sterkari og betri en heimurinn þó hann sé bara rétt rúmlega 90 cm!
Uppáhaldið mitt er frasinn hans "ég er soldið 7 ára"
Svo spurði mamma hann hvað sumarfrí væri eiginlega og hann sagði "svona hálf átta"

Við erum ný komin frá Spáni og þó ferðin hafi gengið ágætlega þá er aðeins of mikið að vera með 3 börn undir 7 ára í útlöndum. Alltaf á barmi taugaáfalls yfir sundlaugum eða mögulegum barnaræningjum.
Þá er nú betra að láta bara húsdýragarðinn duga eða góða sumarbústaðarferð.

Ætli ég láti þetta bara ekki duga í bili.
Kem kannski með myndir og eitthvað fútt í þetta í næstu færslu:)
Hulda

Thursday, May 24, 2007

Kaninka

Ok,,,vika til skila og ég á eftir að gera svoooo mikið. Vildi bara deila með ykkur þessu ofur skemmtilega myndbandi. Ég hélt ég gæti ekki elskað CSS meira en ji, jú það er hægt.



Ég trúi ekki að þetta skólaár sé að verða búið, hvað þá að ég sé að klára BA...ótrúlegt hvað tímanum líður. Wow ég ætla að hætta áður en þetta verður einhver mega leiðinleg færsla.

Saturday, May 12, 2007

smá framhald af dönskugríni fundu..:)


AAHHAHAHAHAHAHA!

-eva

Friday, May 11, 2007

YouTube time!

Stuð að það sé komið líf í Klemmuna aftur. Ætla að deila hérna með ykkur skemmtilegum myndböndum í tilefni þess að það er föstudagur!

Skemmitlegt sumarlag sem ég fæ ekki nóg af


Óóógeðslega fyndin klippa sem Solla benti mér á



Og smá svona í tilefni eurovision á morgun. Planað svaka eurovisionparty hérna, mikill spenningur. Er eitthvað svipað planað hjá fellow klemmum? (fann ekki Sumarsamba svo þetta er second best)


Góða helgi elskurnar :)

Thursday, May 10, 2007

klemmurnar og elvis










Tad mætti segja ad glatt hafi verid á hjalla hjá nokkrum kokteil-tyrstum klemmum sídastlidna helgi. Klemma ein skellti sér í kaupstadarferd til køben. Létu klemmur tad tækifæri sér ekki úr greipum renna og budu til gledskapar á frederiksbergi. Tar hafdi klemma ein kát brugdid sér í gervi elvis, vid mikla lukku vidstaddra. Og audvitad var tekid í spil, og lúdó skúdó spilad af miklum mód.





Saturday, May 05, 2007

Klemmugrill!!

Klemms, klemms, klemms...trúi ekki að við erum að leyfa Klemmunni að veslast svona upp og deyja. Getum ekki látið það viðgangast. Annars er allt fínt að frétta í London. Er bara eins og þið allar í stressi fyrir próf og skil en ég verð að segjaað það er einstaklega þægilegt að komast hjá því að læra í 15 mín með að henda þessu inn.

Ég legg til hér með að það verði haldið Klemmugrill í annarri eða þriðju viku í júlí. Er ekki þá meirihlutinn komin heim? Réttið upp hendur sem eru meðfylgjandi tillögu þessari!



Funda